Ísland - 5 stjörnu hótel

Haldið að það sé tilviljun að gæjinn poppi upp hérna.?Íslensku fangelsin eru 5 stjörnu hótel. Og hvar er betra að vera glæpamaður en á Íslandi? Ekki haldið þið að hann sé sá eini sem hafi lagt leið sína hingað?
mbl.is Ramos í 30 daga fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju er fyrirsögning ekki "LYGARI!!!!"

Ég nenni ekki einu sinni að rífa kjaft út af þessu, en hvernig dettur mönnum í hug að einhver trúi svona kjaftæði. Ok, segjum sem svo að þetta hafi verið svo gott og vel rekið fyrirtæki. HVAR ERU ÞÁ PENINGARNIR????
mbl.is Knésetja menn eigin fyrirtæki af ásetningi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

334 dauðir? þetta er fullkomnega öruggt.......

Skemmtileg frétt. Hún er sett upp eins og hún eigi að upphefja þetta vopn, en, segir 334 dauða eftir notkun þess.....magnað......
mbl.is Ný Taser-byssa kynnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jahérna. Nú er best að koma sér úr landi.

Gera menn sér grein fyrir því hve margir byggja afkomu sína á sjávarútvegi hér á landi. Og enn nokkrar hræður af landbúnaði. Það verður gaman að sjá þegar borgarbúar byrja að grenja yfir því að þeir fái enga vinnu, þegar fólk flytur til borgarinnar eftir að EU bannar alla veiði.  Eins verður gaman að sjá þegar menn væla yfir "eitruðu" matvöronum (eins og danir kalla þær) á markaðnum eftir að EU opnar fyrir þær.

Verði ykkur að góðu. Við erum nú þekkt fyrir misgáfulegar skyndilausnir, þannig að þetta hefði sosum ekki átt að koma á óvart. 


mbl.is Össur: „Diplómatískur sigur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, mér lýst vel á þetta.

Nú er rétti tíminn til að koma upp búnaði, þá sérstaklega ef aðrir skaffa búnaðinn. Við eigum nóga orku, og því ættum við að nýta okkur það betur. Sá asni sem predikaði einkavæðingu hér um árið, er að mínu mati ekki sérlega vel gefinn. Nú súpum við seyðið af þessari skammgóðu-vitleysu. Sem dæmi: ef orkunýting væri ríkisvædd, þá hefðum við þann möguleika að bjóða grænmetisbændum hana á kostnaðarverði. Og hvað græðum við á því, gæti einhver spurt. Jú, þá höfum við amk grænmeti til að borða, ef við færum á hausinn á alþjóðavísu. því ég spyr, hvernig getur sjálfbært ríki farið á hausinn?
mbl.is Vísir að ofurtölvumiðstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HALLÓ!!!! EF ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ GREIÐA BÆTUR, ÞÁ ER EKKI HÆGT AÐ SÓA PENINGUM!

Þetta er alveg ótrúlegt. Við heyrum sögur af því að fólk sem er í miklum vandræðum fjárhagslega, gerir sína síðustu tilraun til að bjarga sér með því að leysa til sín auka-lífeyrissparnað, en missir atvinnuleysisbætur í staðin, og nær því ekki að lifa mánuðinn. Svo kemur það eins og blaut tuska í andlitið á okkur að sinfóníuhljómsveitin okkar kosti okkur 100 milljónir á ári, og að við séum að borga 30 milljónir í einhverja snobb-hænu-listasýningu.

HVAÐ ER AÐ OKKUR????


mbl.is Evran er listinni dýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞIÐ TÓKUÐ ÞESSI LÁN SJÁLF!!! YKKAR HEIMSKA!!!!

Hvað er að fólki? Þetta er ekki neinum að kenna nema ykkur, eða öllu heldur okkur. Þið tókuð þessa ákvörðun að taka lán upp á fáránlega háar fjárhæðir, og þið ákváðuð að íslenska krónan væri "gömul og úrelt". Hvernig dettur ykkur í hug að einhver annar beri ábyrgð á ykkar ákvörðun? Þið þurftuð að kaupa hús upp á múlti-millur til að vera "inn" í samfélaginu.

Æi, fyrirgefiði, ég bara get ekki setið á þessari skoðun minni. Það fer virkilega í taugarnar á mér þegar er verið að grenja yfir eigin heimsku. Lesiði svo þessa grein, eða öllu heldur svörin við þessari grein. Þá sjáið þið viðhorfið gagnhvart okkur íslendingum, ekki ríkisstjórn, heldur okkur íslendingum persónulega:

 http://www.m5.is/?gluggi=frett&id=83607


mbl.is Hvetja þjóðina til greiðsluverkfalls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, þeir siðlausu standa með sínum!!!

Það er ekki að spyrja að því. Þeir standa þétt saman gegn okkur Íslendingum. Árni Johnsen var nú gott dæmi þess að þeir hafa allir eitthvað að fela, blessuðu sjálfstæðismennirnir. Og það besta er..... þeim finnst það bara alveg sjálfsagt mál að þeir komist upp með það! Hvað Hvað söng KK hérna um árið? " hann er besta skinn, þessi vinur þinn" var það ekki svo?
mbl.is Vilja ekki að Gunnar hætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evrópusambandið? Er það gott?

"Burt með eitraðar matvörur" "Á EU að ákveða allt" eru meðal auglýsinga sem þekja götur Danmerkur þessa daganna. Er Evrópusambandið í alvörunni eins gott og menn keppast um að telja okkur trú um þessa daganna. Af hverju skoðum við ekki nágrannalöndin og spyrjum þá hvað þeim finnst. Það er eins og eingöngu þeir sem mæli með sambandinu komist í fréttirnar. Eru fjölmiðlar á íslandi marktækir, er spurning sem ég velti fyrir mér, í ljósi þess sem búið er að ganga á undanfarið síðasta ár...... 
mbl.is Varar við of mikilli bjartsýni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jú, þarna er góða, hæródýra vinnuaflið að koma aftur.

Það sem fer í taugarnar á mér, er einfaldlega hve vitlaus við erum, svona upp til hópa. Eitt sinn man ég eftir því, þegar menn predikuðu hér um hve gott var að fá inn ódýrt og gott vinnuafl til landsins. Þeir gátu unnið öll þau störf sem við nenntum ekki að sinna, (sem og önnur störf sem íslendingar efðu verið alveg til í að sinna en fengu ekki því þeir vildu of há laun), og var hægt að nýðast á þeirra réttindum í bak og fyrir.

og nú kemur allt í einu upp á daginn Ha! hafa þeir unnið sér inn réttindi til atvinnuleysisbóta? jahérna......!"

Hvar eru þessir heimskingjar sem predikuðu hér um árið? Er þetta ekki fólkið sem er að sökkva Íslandi?


mbl.is Útlendingar snúa aftur til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Valgeir Árnason

Höfundur

Valgeir Árnason
Valgeir Árnason
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband