Og þetta viljum við???

Alveg hefði það nú verið frábært, ef við hefðum lent í þessu bankahruni, samhliða því að missa veiðirétt okkar til Evrópusambandsins. Það er nokkuð ljóst að enn og aftur er fiskurinn að bjarga okkur með útflutning, sem væri ekki til staðar ef við hefðum verið svo vitlaus að troða okkur inn í evrópusambandið.

Hitt er hins vegar annað mál, að stór hluti af tekjum sjávarútvegsins nær aldrei nokkurn tíma inn fyrir landssteinanna. Þvílík synd á þessum tímum!


mbl.is Óttast um fiskimiðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En, því miður er bara full ástæða til

"fyrir barðinu" er skemmtilegt orðtak þarna. Því miður verðum við að íhuga það, að líklega er einfaldlega full ástæða til þess að framkvæma svona leit. Fíkniefni eru daglegur viðburður í okkar þjóðfélagi, og að öllum líkindum eru það þeir sem reyna að koma í veg fyrir eftirlit og leit, þeir sem eru að nota fíkiefni.

Ef menn vita af því að enginn sé með fíkniefni, af hverju ættu þeir þá að vera ósáttir við, að það sé sannreynt?


mbl.is Heimdallur gagnrýnir fíkniefnaleit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hahahaha, það tók því að byrja að auglýsa snemma.....

Já, ég er rosa hrifinn af markaðsfræði. "Það gaf góða raun að byrja auglýsingaherferð fyrir jólin snemma, og því verður það fyrr þetta árið" sögðu þeir, rígmontnir og uppfullir bjartsýni. Jólaauglýsingum var hrint yfir landsmenn langt fyrir tímann, og viti menn........Æ..æ...fór jólaverslunin hægt af stað? Þetta sýnir okkur það, að sum geta menn ekki lært í skólum. Ekki gáfu þessir flóknu útreikningar menntaðra manna góða raun, en líklega hafa gamlir kaupmenn séð þetta fyrir.....
mbl.is Jólaverslun fer rólega af stað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli þeir séu farnir að kenna mönnum að senda kurteisisleg sms skilaboð?

Nei, mér bara svona datt þetta nú í hug. Skondin frétt, þegar nokkrir öryggisverðir í þeirra röðum hafa verið viðriðnir ýmsilegt misjafnt á síðustu árum. En, jæja, gott og blessað.
mbl.is Securitas fékk starfsmenntaverðlaunin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jú, sjáið nú til, hér er nefnilega ekki lýðræði

Já, mikið rétt. Á Íslandi er ekki lýðræði, heldur ráðherraveldi. Því skiptir engu hversu spilltir menn eru, ósvífnir eða brotlegir gegn lögum. Það er ekki hægt að lögsækja þá því þeir ráða. Ekki við, almenningur. Á meðan þessir spilltu menn standa við stjórnvölin og þurfa ekki að svara fyrir eitt eða neitt, þá munum við engum bata ná. Þess vegna á að taka þetta flokkakerfi og henda því. Fólk á að ráða hvaða menn, (ekki hópur af mönnum) stjórna landinu. Og ef menn standa sig ekki í vinnu, þá á að taka á því, eins og hjá hverju öðru fyrirtæki. Að reka land, er jú nákvæmlega eins og að reka stórt fyrirtæki
mbl.is Hvorki megum né eigum að leggja til ákæru á ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki kominn tími til að losna við þessa menn?

Þeir sýna það vel með svona framkomu, að þeir sýna enga iðrun. Hannes Smárason krefst milljarðs. Ég spyr bara, er ekki kominn tími til að losa þjóðfélagið við svona menn. Það er alveg ljóst að þeir gefast ekki upp fyrr en við hin sveltum til bana sökum fátæktar. Þessir aðilar, sem spiluðu sig svo stórt um árið, eru einfaldlega að sýna það, að þeir eru viðbjóður. Mér er alveg sama um þau lög sem þeir brutu ekki. Það skiptir einfaldlega engu máli þessa daganna. Það mun engin sátt, né stöðuleiki nást, á meðan þessir menn hafa ennþá eitthvað að segja.

En hvað á að gera við þá? Eigum við að henda handrukkurum og morðingjum út úr fangelsum til að loka þá inni? Varla.......


mbl.is Hannes krefst rúmlega milljarðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sátt? Geðgðoðir ferðamenn á Akureyri

Vá, þetta er fyndin frétt. Jú, ég er ekki ósáttur við þetta fyrirkomulag, en, hins vegar get ég ýmindað mér viðmótið sem snýr að ferða mönnum. "HAHAHAHA, þú er utanbæjarmaður, og þú vissir ekki að hér eru klukkur, og því skaltu borga! BORGA SEGI ÉG!!!. OG SNAUTAÐU SVO ÚT úR BÆNUM!"

Eða, svona sé ég þetta fyrir mér.


mbl.is Nóg að skrifa miða til stöðumælavarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BURT MEÐ SÓÐANNA!

Þessu fagna ég, og á ég að segja ykkur af hverju? Ég er hundleiður á helv.... sígarettustubbonum sem liggja út um allar götur og gangstéttar. Það er viðbjóður að sjá börn taka þetta upp, og jafnvel smakka á. Ég verð feginn að losna við þennann sóðaskap sem kemur frá reykingafólki. FÓLK ER FÍFL! að henda þessu út um allar trissur.

BURT MEÐ (að minnsta kosti) SÍGARETTUR!


mbl.is Tóbak verði tekið úr almennri sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það vita þetta allir sem hafa eitt sinn notað alvöru kjöt....

Að reyna að hylma yfir þetta er álíka eins og að hylma yfir bankahrunið. Þetta vita allir, sem eitt sinn hafa komist í alvöru hakk, að megin þorri þess hakks sem er keypt í matvörubúðum, er stútfullt af soyja viðbjóði, og alls konar efnum sem ég kann ekki skil á. Einnig er þetta blessaða nautakjös sem maður kaupir í kjörbúðum, uppfyllt af vatni. Það vita það allir, sem eitthvað vita um kjöt, að pannan á ekki að vera full af vökva eftir að nautakjöt er steikt. Það er alveg ljóst, að það er verið að svindla á okkur trekk í trekk. Og alveg ótrúlegt að landsambandið reyni að moka því undir teppið. Skammarlegt!
mbl.is Harma ummæli um kjöt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og í kjölfarið var þeim sleppt.....

Ó......þeir eru greinilega ekki of hættulegir til að ganga lausir. Erum menn að bíða eftir því að einhver verði drepinn? Og á þá að endurskoða málin? Æi, þetta er sosum rétt. Enga höfum við löggæsluna sökum peningaskorts, þannig að það er kannski bara best að leyfa landinu að fara beint til helvítis.......
mbl.is Árás í Breiðholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Valgeir Árnason

Höfundur

Valgeir Árnason
Valgeir Árnason
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband