11.9.2009 | 09:14
Það vita þetta allir sem hafa eitt sinn notað alvöru kjöt....
Að reyna að hylma yfir þetta er álíka eins og að hylma yfir bankahrunið. Þetta vita allir, sem eitt sinn hafa komist í alvöru hakk, að megin þorri þess hakks sem er keypt í matvörubúðum, er stútfullt af soyja viðbjóði, og alls konar efnum sem ég kann ekki skil á. Einnig er þetta blessaða nautakjös sem maður kaupir í kjörbúðum, uppfyllt af vatni. Það vita það allir, sem eitthvað vita um kjöt, að pannan á ekki að vera full af vökva eftir að nautakjöt er steikt. Það er alveg ljóst, að það er verið að svindla á okkur trekk í trekk. Og alveg ótrúlegt að landsambandið reyni að moka því undir teppið. Skammarlegt!
Harma ummæli um kjöt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Valgeir Árnason
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hvar eru þessi Neytendasamtök
Jón Snæbjörnsson, 11.9.2009 kl. 09:48
Það þarf enginn að segja mér neitt um þetta. Þegar ég vann við þetta var bætt bindiefnum og soya, sérlega í hamborgara og aðrar unnar vörur. Þeim sem ekki trúa er bara bent á að prófa að setja bonusborgara á pönnuna við hliðina á borgara sem gerður er úr hreinu hakki.
Sjáið bara muninn.
Þessi málflutningur LK er þeim til skammar.
Sleggjan (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 12:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.