Jahá, þannig að VG gera eitthvað með viti.......

Eins mikið og ég er að þvælast sökum minnar vinnu, þá er ég búinn að hamast á heilbrigðisráðuneytinu með því að heimta svör við þeirri spurningu hvort lengra verði að sækja neyðaraðstoð á norður og austurlandi, án nokkurra svara, þá er ég mjög svo ánægður með flokkinn núna. Ég hef engann áhuga á því að drepast út í vegakanti, vegna þess að einhver vitleysingur fékk þá hugmynd að það þyrfti enga heilsugæslur á þessu svæði.

En, nú kemur samt stóra spurningin.......VG hafa verið mjög duglegir í að vera á móti öllu, og eru nokkuð góðir í því. En, koma þeir með lausnir. Það verður spennandi að sjá.


mbl.is Breytingar heilbrigðiskerfinu í uppnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var þetta nú ekki óþarfi??

Ég er alveg hlynntur því að ýmsar aðgerðir séu notaðar til þess að berja ríkisstjórnina til hlýðni, en að brenna jólatréið sem Norðmenn gáfu okkur í jólagjöf, finnst mér vera algjör óþarfi. Það gefur þá mynd að þarna séu allgjör skrílslæti, og þau skilaboð að við kærum okkur ekkert um gjafir og vinahót frá Norðmönnum. Og þið skuluð svo gjöra svo vel og grenja ekki þegar við fáum ekki jólatré frá þeim til að dansa í kringum næstu jól.

 Reynið svo að hugsa aðeins hvað þið framkvæmið. Það er skömm af svona framkomu. Það er miklu betra að styðja íslenska framleiðslu og grýta alþingi og alþingismenn með íslenskum eggjum og tómötum.

En gáið að einu: Ef við grýtum alla alþingismenn, stöndum við ekki frammi fyrir því einn daginn að eiga enga? Sama á við lögreglu. Það þýðir lítið að hringja á hjálp, ef enginn er til að hjálpa.......... Spáum aðeins í það..........


mbl.is Óslóartréð borið á bálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsbyggðarfólk má bara deyja

Ja, þetta skil ég allavega út úr þeim sparnaði sem heilbrigðisráðherra boðar. Það verður það langt fyrir landsbyggðarfólk að sækja neyðaraðsstoð, að það borgar sig í mörgum tilfellum ekki að reyna það. Og svo segir landhelgisgæslan upp mönnum, þannig að ekki verður treyst á hana í öllum tilvikum. Ég vona það heitt og innilega að heilbrigðisráðherra muni lenda sjálfur í því að þurfa að koma barni sínu til læknis einhvern daginn þegar hann er á ferðalagi, og lenda í því sem fólk á landsbygðinni stendur frammi fyrir: að þeim verði ekki bjargað!
mbl.is Áhyggjur af aðgengi í heilbrigðisþjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERNIG EYÐIR ALÞINGI YFIR 2 MILLJÖRÐUM???

Ja, ég bara spyr, hversu margir koma að alþingi,  og hvernig fara þeir að því að eyða yfir 2 milljörðum á ári? Hvað eru það margar heilsugæslur á landsbyggðinni??


mbl.is Alþingi lækkar kostnað sinn um 215 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Unnið í samráði við stjórnendur?

"Breytingarnar hafa verið unnar í samráði við stjórnendur stofnananna sem þær taka til og meginmarkmið þeirra hafa verið kynnt starfsmönnum viðkomandi stofnana. " er klausa sem finna má á heimasíðu Heilbrigðisráðuneytis í grein um þessa breytingu. Ég spyr nú: Er ráðherrann bara lygari?
mbl.is „Lítilsvirðing gagnvart starfsfólki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólk á landsbyggðinni má bara deyja.....

Jú, ekki er annað hægt að skilja það að fólk á landsbyggðinni megi bara deyja, og einfaldlega skipti bara engu máli þegar á að fækka sjúkrahúsum á landsbyggðinni úr 22 í 6. Hve marga klukkutíma skyldu menn þá að vera á leiðinni á næsta sjúkrahús? Ég innileg vona að okkar heilbrigðisráðherra lendi í slysi í sínu sumarfríi, og lendi í slysi. Stundum þarf það að gerast til að menn skilji afleiðingar gjörða sinna. Verst að annað fólk þarf að þjást vegna þeirra heimsku.
mbl.is Sameining stofnana mætir harðri andstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HÁTEKJUSKATT STRAX TAKK!!!

Já, nú er komið að því gott fólk, nú þurfum við að skilgreina hátekjur upp á nýtt. Í dag er ekki eðlilegt að vera með "ofurlaun" í mánaðarlaun. Á þessum tímum verður að leiðrétta þennan mun, svo að siðspilltir aðilar geti ekki lengur ákveðið laun vina sinna á okkar kostnað. Hér hefur efnahagurinn hrunið, og það er alveg sjálfsagður hluti að efstu partar launaþríhyrningsins falli í kjölfarið. Það er samt svo grátlegt að þetta eru ekki bara ríkisstörf, þar sem okkur er látið blæða, heldur þar sem aðilar kaupa fyrirtæki, taka ein mikil lán út á fyrirtækin og þeir geta, og lýsa þau svo gjaldþrota. Þetta er að gerast allsstaðar í kringum okkur, og mér er hreinlega spurn: HVERNIG GETUM VIÐ LÁTIÐ ÞETTA VIÐGANGAST???
mbl.is Blóðug fjárlög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG HVAÐ KOSTAR LÍTER AF DÍSEL!!

Þetta er svo skammarlegt, að það hálfa væri nóg. Að friða bensínnotendur með lægra verði, og keyra verið á dísel upp úr öllu valdi!! Og svo á þetta að vera einhver ægileg frétt?? Það er alveg verið að taka okkur í *********!
mbl.is N1 lækkar eldsneytisverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er kjararáð ekki rót alls ills?

Já, þegar draga á saman á öllum stöðum, nema hjá þeim ríkustu, þá vekur þessi frétt vissulega upp spurninguna, er kjararáð ekki rót alls ills í okkar samfélagi? Eru það ekki þeir sem hafa verið valdur af því að laun hafa rokið upp úr öllu valdi? Merkilegt að þegar allur vilji er fyrir hendi að lækka laun ríkisbubbanna, að þeir skuli standa í vegi fyrir því.

Þurfum við ekki að losa okkur við kjararáð, eins og hvert annað æxli, til að ná tökum á vandanaum?


mbl.is Kjararáð getur ekki lækkað launin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞVÍLÍK EYMD OG SKÖMM!!

Hvernig sofa þessir menn á nóttunni? Fólki er sagt upp á sjúkrahúsum, sem maður hefði nú vilja hafa viðunandi þjónustu á, og svo þykjast þessir menn og þessar konur vera voða góð með því að lækka laun sín um 5-15%???

Það er með öllu skammarlegt að vita til þess að stjórnvöld kyndi undir vandamál atvinnuleysis hér á landi með því að segja upp ríkisstarfsmönnum. Hvað er að? Viljum við frekar borga undir þetta fólk atvinnuleysisbætur, í stað þess að hafa það í einhverri vinnu? Ég bara spyr!


mbl.is Niðurstaða komin hjá kjararáði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Valgeir Árnason

Höfundur

Valgeir Árnason
Valgeir Árnason
Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.2.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband