Hvað getur þú drepið marga menn á 20 mínútum?

"og kom hún á staðinn um 20 mínútum síðar" Vá, þetta er stórkostlegt. Ætli þeir hafi verið uppteknir að skrifa stöðumælasektir einhversstaðar??
mbl.is Til atlögu vopnaðir hnífum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er til háborinnar skammar, gerist ítrekað í þessu hverfi og sjálfsagt á mörgum öðrum stöðum líka !!

M (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 08:27

2 identicon

Það er kannski lítið að sakast við Lögregluna, spurning um hvort að þetta sé ekki fjárlögunum að kenna ?

Þetta er nú ekki eina dæmið um að lögreglan hafi verið lengi á stað þar sem aðstæður eru vægast sagt hættulegar, var þetta ekki svipað í Barðarstrandamálinu ? Nema þar var lögreglan að ég  held meira en hálftíma á leiðinni.

Finnst það til skammar hvað lögreglan er fjársvelt, laun lögreglumanna hafa lækkað, löggæslan í landinu er varla sýnileg lengur, enda eru eflaust allflestir lögreglubílar sem eru á vakt einhversstaðar í felum með radar að reyna að hala inn pening fyrir Ríkissjóð....

Solla Bolla (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 08:28

3 Smámynd: Einar Þór Strand

Ef þið lesið fréttina þá sést að hættan var liðin hjá þegar hringt var eftir aðstoð.  En hitt er svo annað hvort stjórnmálamenn hlífa ekki frekar gæluverkefnum þegar verið er að skera niður heldur en því sem snýr að öryggi borgarana á hættustundum.

Einar Þór Strand, 16.6.2010 kl. 08:39

4 identicon

Skítt með það að lögreglan hafi verið 20 mínútur á leiðinni, en að hafa svo ekkert samband aftur er auðvitað vanvirðing við fórnarlömb.

Jón Flón (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 08:47

5 identicon

Ég var einu sinni í samkvæmi fyrir ca. 8 árum síðan (í góðærinu) en þá lentum við í því að ungur maður mætti með haglabyssu sem hann notaði svo til að brjóta rúðu við útidyrnar. Sem betur fer komst hann ekki inn.

En já það var hringt strax í 112 og 15 mínútum seinna komu tveir óvopnaðir lögreglumenn til að taka skýrslu. Sem betur fer hafði árásarmaðurinn gefist upp og forðað sér.

Hversu marga er hægt að drepa á korteri með svona byssu? Svo hefði hann líka bara getað haldið áfram eftir komu lögreglunnar miðað við viðbrögðin þeirra.

Geiri (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 08:58

6 identicon

Það er ALLT of langt að þurfa að bíða í 20 mínótur, eftir svona árás þá þarf lögregla að bregðast skjótt við. Þetta er alveg til háborna skammar.

Ef þeir hefðu komið fljótt hefðu þeir kannski náð árásarmönnunum ef þeir hafa ekki flúið langt, en fyrir utan að þá veitir það fórnarlambinu öryggiskennd að fá lögregluna á staðin heldur en að bíða í von og ótta um að árásamennirnir komi ekki aftur. Þetta hafa verið langar 20 mínótur.

Björn Magnús Stefánsson (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 09:37

7 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Lögreglan kemur bara eftir 20 mínútur.  Það tekur tíma að ferðast innan RKV.  Úti á landi tekur þetta svona 2-5.

Ef þú nennir ekki að bíða, náðu í þinn eigin hníf.

Ásgrímur Hartmannsson, 16.6.2010 kl. 10:48

8 identicon

Ræðið þetta við hann Steingrím, kannski hlustar hann á ykkur og eykur fjárveitingar í löggæslu í staðin fyrir að skera þær niður

Þá verður kannski hægt að vera með ásættanlegan fjölda manna á vakt, bíla sem bremsa osfrv

ég (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 12:25

9 identicon

Lögreglan ætti að geta farið frá Hafnarfirði til Mosfellsbæjar á 20 mín. Þegar það er neyðartilfelli þá er sett á ljósin og gefið í.

Allt yfir 10 mínútur er óásættanlegt.

Geiri (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Valgeir Árnason

Höfundur

Valgeir Árnason
Valgeir Árnason
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband